Aðal rigningartímabilið hérna er í apríl en stendur frá miðjum mars fram í miðjan maí. Fyrstu vikuna mína hér var steikjandi sól og hiti en eftir það fóru skýin að láta sjá sig með stöku skúrum. Það var hins vegar í gærmorgunn sem fyrsta alvöru demban kom. Ég var sofandi en vaknaði við hljóðið og í fyrsta sinn síðan ég kom greip ég í lakið mitt (ekki dýnulakið, heldur hitt), og breiddi yfir mig. Það var samt svo notalegt að hlusta á rigninguna.
Það er orðið aðeins kaldara núna,fer niður í 20 stiga hita á nóttunni og loftið er rakara. Malarvegirnir sem ég labba í vinnuna eru eitt drullusvað á morgnanna en skárri á leiðinni heim því þá hafa þeir þornað nokkuð.
Nú fer í hönd mikill gróður- og uppskerutími. Það er komin gróðurlykt í loftið. Þessa vikuna hefur annar hver maður verið með garðverkfærið með sér í strætó. Mér hefur líka verið sagt að sumir ráði einfaldlega ekki við sig og borði rennblauta moldina af þakklæti og ánægju fyrir rigninguna. Ég labba í gegnum mikið landbúnaðarhérað á leið minni í vinnuna. Það var rétt farið að sjást í eitthvað grænt gægjast uppúr moldinni á föstudaginn. Það var orðið þónokkuð hærra þegar ég mætti á mánudaginn (í gær), búið að vaxa heilmikið þegar ég fór heim og þegar ég fór heim áðan voru maísgrösin orðin svona 10 cm há.
Á rigningartímabilinu er algengara að rafmagnið detti út. Í gærmorgun var einmitt rafmagnslaust og þegar ég kom fram sagði mamma Rósa mér að "dada/systir" (vinnustelpan á heimilinu) væri farin út í búð að kaupa kol til að hita vatn. Ég reyndi að malda í móinn, dagðist ekki þurfa að fá te en það var ekki tekið til greina. Ég YRÐI að fá heitt te áður en ég færi út í þessum kulda. (kuldaskræfan ég var samt enn að stikna í stuttermabolnum). Í strætó á leiðinni í vinnuna voru margir klæddir peysum. Hins vegar var konan sem sat á móti mér í flísgalla með húfu og trefil. Ég þurfti að hafa mig alla við að halda andlitinu á mér alvarlegu.
Jahá nú er regntímabilið að hefjast sennilega meiri drungi en þurrkatímabilin. En maður lifandi hvað ég held að sé gaman að fylgjast með gróðrinum fyrstu dagana. Skemmtilegt bloggið þitt að vanda, takk og takk fyrir það elskulegust mín. Mbl.mamma
ReplyDeleteÞetta er fyrsti dagurinn sem sú gula uppi lætur sjá sig hér fyrir sunnan, en það er komið óveður á norðurlandi núna. Mbl. Mamma
ReplyDeleteHahahah en æðislegt....flísgalli með húfu og trefil meðan þú varst að stikna - það gerist nú ekki a´hverjum degi! Hugsaðu þér hvernig ég hefði þá verið þarna... líklega lekandi niður í gólf af hita ;)
ReplyDeleteJá það er svo sannarlega gaman að fylgjast með gróðrinum þessa dagana mamma.
ReplyDeleteOg já Unnur, ég virkilega átti erfitt með að halda andliti, hvernig í ósköpunum. Ég mynd í alvöru labba á eftir þér með loftkælingarvél ef þú kæmir í heimsókn :P